Samhliða breyttum áherslum í fyrirtækinu og hröðum vexti Parka vörumerkisins hefur nafni félagsins verið breytt úr Computer Vision ehf. í Parka Lausnir ehf.
Parka vörumerkið hefur svo sannarlega fest sig í sessi og notendur appsins komnir yfir 70.000.
Nafnabreytingin styður við fjölbreytt úrval þjónustuþátta Parka:
- Parka app – Til að leggja í gjaldskyld bílastæði
- Parka Smart Access – Aðgangsstýringar- og eftirlitskerfi fyrir svæði
- Parka Camping – Bókunarkerfi fyrir tjaldsvæði
- Parka Spons – Svo fyrirtæki geti greitt bílastæðagjöld viðskiptavina sinna
- Parka Taxi – Svo fólk og fyrirtæki geti pantað taxa í appinu
Við þetta má svo bæta fyrirtækjaþjónustu og öðrum sérsniðnum lausnum fyrir viðskiptavini okkar.
Við viljum þakka öllum viðskiptavinum og notendum okkar kærlega fyrir að hafa tekið þátt í þessari vegferð með okkur og horfum björtum augum til framtíðar með ykkur.