Sett hefur verið upp rafrænt og sjálfvirkt eftirlits- og innheimtukerfi við bílastæði þjónustumiðstöðvar Vatnajökulsþjóðgarðs í Skaftafelli. Sjálfvirk innheimta Computer Vision ehf. byggir á myParking kerfi félagsins sem notast við rafræna tækni sem greinir bílnúmer með myndavélum og hugbúnaði sem komið hefur verið upp við Skaftafell. Eigandi ökutækis ber ábyrgð á að þjónustugjöld eru greidd samkvæmt gjaldskrá þjóðgarðsins. Greiði viðkomandi ekki innan ákveðins tímaramma í greiðsluvél í þjónustumiðstöð, heimasíðu eða síma appi stofnast krafa á eiganda ökutækis í heimabanka viðkomandi.